Andrésar Andarleikarnir 2016

41. Andrésar Andarleikarnir í skíðaíþróttum verða haldnir í Hlíðarfjalli dagana 21.-23. apríl 2015.  Verð fyrir börn er 2.400 kr. og fyrir fullorðna 7.400 kr.

Andrésarleikarnir eru stærsta skíðamót landsins með um 700-800 keppendur á aldrinum 6-15 ára ár hvert.  Þeim fylgja þjálfarar, fararstjórar, foreldrar og  fjölskyldur og má því gera ráð fyrir að um 2500 manns sæki leikana.

Um langt skeið hefur verið keppt bæði í alpagreinum skíðaíþrótta sem og skíðagöngu, en árið 2012 var í fyrsta skipti keppt á snjóbrettum. Einnig hefur verið keppt í svokölluðum stjörnuflokki um nokkurra ára skeið, en þar keppa fatlaðir og/eða hreyfihamlaðir íþróttamenn.

Hér má sjá dagskrá leikanna