Hlíðarfjall, framandi skíðasvæði

Í síðustu viku birti vefurinn Unofficial Networks sem er hluti af USA Today keðjunni, val sitt á 12 flottustu eða mest spennandi (exotic) skíðasvæðum heims og á þeim lista er að finna Hlíðarfjall ofan Akureyrar. Skemmst er að minnast þess að fyrr á árinu valdi ferðamannavefurinn Lonely Planet Akureyri sem besta áfangastaðinn í Evrópu árið 2015 þannig að ljóst er að vinsældir bæjarins aukast nú hratt hvort heldur sem er að sumri eða vetri. Listann frá Unofficial Networks má sjá HÉR. http://unofficialnetworks.com/2015/09/top-12-most-exotic-ski-resorts-in-the-world