Sími: 462 2280
Bréfasími: 461 2030
hlidarfjall@hlidarfjall.is
Í Hlíðarfjalli er sannkölluð skíðaparadís rétt við bæjardyrnar. Þar eru frábærar aðstæður til skíða- og snjóbrettaiðkunnar. Lyfturnar á svæðinu geta samanlagt flutt 4.920 manns á klst. en samfelldur hæðarmunur á skíðabrekkunum er um 500 metrar.
Skíðastaðir voru byggðir á árunum 1955-1964 en rekstur hófst 1962. Húsið stendur í 506 metra hæð yfir sjávarmáli.
Strýta stendur í um 700 metra hæð yfir sjávarmáli. Þar er greiðasala og salerni fyrir gesti í Hlíðarfjalli.
Vetraríþróttamiðstöð Íslands er starfrækt í Hlíðarfjalli en hún var stofnuð á Akureyri með staðfestingu
samstarfs menntamálaráðuneytis, Akureyrarbæjar, Íþrótta- og olympíusambands Íslands og Íþróttabandalags Akureyrar, 18.
mars 1998. Í reglugerð sem menntamálaráðherra gaf út þann sama dag segir meðal annars:
"Vetraríþróttamiðstöð Íslands, VMÍ, er þjónustustofnun sem hefur að megin verkefni að efla vetraríþróttir,
íþróttafræðslu og útivist og stuðla þannig að heilbrigðu lífi og heilsurækt meðal almennings, svo sem skólafólks,
fatlaðra og keppnis- og afreksfólks í íþróttum með hefðbundnar vetraríþróttir, íþróttafræðslu og
útivist að leiðarljósi."
Fastir starfsmenn í Hlíðarfjalli eru sex sem vinna allt árið. Á sumrin er unnið að vilðhaldi og uppbyggingu á skíðasvæðinu en veturinn fer að mestu í að þjónusta gesti og fjölgar þá starfsfólki í um 50 manns.
----------------------------------------------
Guðmundur Karl Jónsson, forstöðumaður: gudmundur@hlidarfjall.is
Magni Rúnar Magnússon, svæðisstjóri: magni@hlidarfjall.is
Haraldur Tryggvason, umsjónarmaður snjótroðslu: halli@hlidarfjall.is
Einar Garðar Hjaltason, svæðisstjóri: einar@hlidarfjall.is
Valdimar Ólafsson, verkstæði: valdimar@hlidarfjall.is
Hólmfríður Sara Friðjónsdóttir, verkstjóri innanhús: frida@hlidarfjall.is
Skrifstofa Hlíðarfjalls: hlidarfjall@hlidarfjall.is
462 2280

Þú getur líka fylgst með okkur á