Andrésar Andarleikarnir verða settir í íþróttahöllinni á Akureyri miðvikudaginn 20. apríl og standa yfir dagana 21. -23. apríl 2022.

Andrésar Andarleikarnir verða settir í íþróttahöllinni á Akureyri miðvikudaginn 20. apríl og standa yfir dagana 21. -23. apríl 2022.

Leikarnir hafa verið svo til árlegur viðburður í Hlíðarfjalli frá árinu 1976. Þetta er fjölmennasta skíðamót landsins með hátt í 1.000 keppendur á aldrinum 4. – 15. ára. Keppt er í alpagreinum, skíðagöngu og á snjóbrettum  og eiga fjölmargir skíðamenn ljúfar minningar frá leikum liðinna ára.

Verð á lyftumiðum á Andrésar Andarleikana eru kr. 9.800 fyrir fullorðna og 2.700 fyrir börn. Hægt er að kaupa miða á netinu og einnig í miðasölu Hlíðarfjalls.

Dagskrá leikanna má sjá hér