🔧 Fjarkinn lokaður í dag, fimmtudaginn 20. ágúst 🔧

Vegna víraskoðunar á Fjarka stólalyftu verður því miður ekki hægt að opna hana í dag fyrir hjólagarðinn, hinsvegar eru allar brautirnar í flottu standi og öllum velkomið að koma og hjóla eða ganga um í fjallinu ☺️
Víraskoðunin kom mjög vel út og við erum nú þegar byrjaðir að setja stóla aftur á lyftuna, smyrja hengi og gera fínt 💪🏻
Stefnan er að vera með helming stóla klára á henni fyrir laugardagsopnun, svo ætti allt að verða komið í venjulegt horf fyrir næstu þriðjudagsopnun 🙌🏻
 
Þökkum skilninginn 🥰
(Myndin var tekin í blíðunni á þriðjudaginn)