Forsala vetrarkorta 2026/2027 er hafin

Hin árlega forsala vetrarkorta er hafin og stendur til 10. des sem er fyrirhugaður opnunardagur. Við vonumst að sjálfsögðu til að opna fyrr ef aðstæður leyfa en eins og alltaf þá er það veðrið sem ræður ferðinni.

Við höfum náð að framleiða vel á síðustu vikum en lítið hefur verið um snjókomu, við þurftum að að slökkva á framleiðslu í dag vegna hita en um leið og aðstæður skapast aftur munum við setja allt á fullt.

Eins og áður er talsverður afsláttur í boði í forsölunni og því um að gera að nýta tækifærið til að tryggja sér kort fyrir veturinn.

Vetrarkort í forsölu: Fullorðnir 55.160 / Börn 9.600

Skíðagöngukort í forsölu: Fullorðnir 14.220 / Börn 2.310

Forsalan fer fram hér á heimasíðu okkar hlidarfjall.is með því að smella á gula hnappinn“Kaupa miða /kort” efst í hægra horninu.

Hlökkum til að sjá ykkur í vetur :)