Fullorðinsnámskeið á fimmtudögum fyrir byrjendur!

Við viljum minna á okkar frábæra fullorðinsnámskeið.
Það er aldrei of seint að byrja!

Á fimmtudögum bjóðum við upp á skíða- og brettanámskeið ætluð fullorðnum.

Markmið námskeiðisins er að iðkendur nái undirstöðuatriðum skíðaíþróttarinnar og geti notið þess að renna sér í brekkum Hlíðarfjalls hjálparlaust.
Tilvalið fyrir þá sem ekki hafa prófað þessa hvítu list eða langt síðan síðast.

Kennslutími kl. 17:00 – 18:30.
Námskeiðsgjald er 7.000 kr. skiptið.

Innifalið í verði er kennsla, leiga á búnaði og aðgangur að lyftum.
Í skíða- og snjóbrettaskólanum er hópur af reyndum skíðakennurum.

Skráning og nánari upplýsingar í síma 462 2280 eða á skidaskoli@hlidarfjall.is