Hlíðarfjall - Winter Park - Skotland

Vetrarkort á skíðasvæðið í Hlíðarfjalli gilda einnig í þrjá daga á skíðasvæðið í Winter Park í Colorado sem er í eigu Denverborgar. Handhafar vetrarkorta í Winter Park geta á sama hátt skíðað í þrjá daga í Hlíðarfjalli. 
 

Skíðasvæðið í Winter Park er í Klettafjöllunum um 100 km vestur af Denverborg. Það er eitt vinsælasta skíðasvæði fylkisins og þangað flykkjast Denverbúar og annað útivistarfólk yfir vetrartímann. Svæðið nær yfir um 1.200 hektara og þar eru 25 skíðalyftur. Allar upplýsingar um Winter Park er að finna á heimasíðunni www.winterparkresort.com.

Hlíðarfjall er nú komið í samstarf við skíðasvæðin í Skotlandi og geta vetrarkortshafar í Hlíðarfjalli skíðað í þrjá daga á hverju svæði. Hér má sjá skíðasvæðin http://ski.visitscotland.com/maps/