Vegna góðra aðstæðna opnum við fyrr en áætlað var föstudaginn 7. júlí kl. 17

Í Hlíðarfjalli er góð aðstaða til útivistar bæði fyrir hjólareiða- og göngufólk. Hægt er að taka hjól með sér í stólalyftuna, Fjarkann, og nýju stólalyftuna, Fjallkonuna, en þó verður takmarkað hjólapláss í Fjallkonuna og er ekki ætlað yngri en 17. ára nema í fylgd með fullorðnum.

Fyrir fótgangandi gildir lyftumiðinn fram og tilbaka.  Þeir sem eru gangandi geta tekið fyrst Fjarkann og gengið svo niður um 200 metra og farið upp með Fjallkonunni. Við endastöð Fjallkonunnar er slóði til norðurs, Sneiðingurinn, en þaðan tekur um það bil 20-30 mín að ganga upp á brún. Lyftumiðar eru seldir við Fjarkann og á heimasíðu Hlíðarfjalls.

Fjarkinn mun ganga á fimmtudögum og föstudögum frá kl. 17-21, á laugardögum frá kl. 10-17 og sunnudögum frá kl. 10-16. Áætlað er að Fjallkonan verði opin frá 29. júlí til 20. ágúst, samtals fjórar helgar á laugardögum og sunnudögum frá kl. 10-15. Veitingasala í skíðahóteli verður opin á laugardögum og sunnudögum frá kl. 12-16.

Hlíðarfjall og Hjólreiðafélag Akureyrar bjóða upp á sex hjólabrautir í fjallinu í sumar: Andrés, Hjalteyrin, Ævintýraleið, Gamli skóli og Downhill brautin ásamt æfingabraut fyrir byrjendur við veginn upp að skíðagönguhúsi. Einnig eru þrjár leiðir, Gosi, Drottning og Hrúturinn, tvær frá gönguhúsi og ein frá lyftuskúr við Fjarkann sem allar liggja yfir í Glerárdal. Fyrir þá sem eru gangandi er tilvalið að stoppa við Strýtuskála og njóta útsýnis yfir Akureyrabæ og Eyjafjörð. Frá Strýtuskála er svo merkt gönguleið upp á brún Hlíðarfjalls. Þegar þangað er komið er til dæmis hægt að ganga að Harðarvörðu, Blátind, Bungu, Strýtu, Kistu eða á Vindheimajökul og á góðviðrisdögum má oft sjá yfir í Mývatnssveit, Herðubreið eða vestur í Skagafjörð svo eitthvað sé nefnt.