Fríar rútuferðir laugardaginn 4. apríl

Laugardaginn 4. apríl verða FRÍAR rútuferðir á vegum Hlíðarfjalls til og frá bílastæði Bílaklúbbs Akureyrar, Hlíðarfjallsvegi, þar sem hægt verður að leggja bílum.
Fyrsta ferð verður farin kl. 09:30, önnur ferð kl. 10:00, þriðja ferð kl. 10:30 og fjórða kl. 11:00 eftir það mun rútan keyra á klukkustunda fresti fram og tilbaka allan daginn og verður síðasta ferð frá Hlíðarfjalli niður á stæði kl. 16:30
Viljum vinsamlegast benda fólki á að vanda sig við að leggja bílum í bílastæði upp á skíðasvæði til þess að nýta betur stæðin.