Síðasta opnun sumarsins í Hlíðarfjalli verður á morgun, laugardaginn 5. september.
Hjólreiðafélag Akureyrar verður með síðustu krakkaæfingu sumarsins sem byrjar klukkan 11 og ætlar að bjóða þeim sem vilja að slást í hópinn. Klukkan 12 verða svo grillaðar pylsur og hamborgarar og klukkan 13 verður hópast saman í partýlest niður Andrésinn.
Vonumst til að sjá sem flesta í fjallinu :)