Skíða- og brettaskóli fyrir fullorðna

Skíðaskólinn í Hlíðarfjalli býður upp á skíða- og snjóbrettanámskeið ætlað fullorðnum byrjendum. Markmið námskeiðsins er að iðkendur nái undirstöðuatriðum skíðaíþróttarinnar og geti notið þess að renna sér í brekkum Hlíðarfjalls hjálparlaust.

Tilvalið fyrir þá sem ekki hafa prófað þessa hvítu list eða það er orðið langt um liðið síðan síðast.

Skráning og nánari upplýsingar í síma 462-2280 eða skidaskoli@hlidarfjall.is

Hægt er að koma einu sinni eða oftar.

Námskeiðsgjald er 6.000 kr. skiptið. Innifalið í verði er kennsla, leiga á búnaði og aðgangur í lyftur.