Skíða- og brettaskóli laugardaginn 9. janúar frá kl. 09:30 til 11:30 og sunnudaginn 10. janúar frá kl. 10-12 fyrir börn frá 5 til 15 ára.

Skíða- og brettaskóli laugardaginn 9. janúar frá kl. 09:30 til 11:30 og sunnudaginn 10. janúar frá kl. 10-12 fyrir börn frá 5 til 15 ára.  Einungis er hægt að bóka og greiða á heimasíðu Hlíðarfjalls, nánari upplýsingar í síma 773 6625 og á info@icelandsnowsports.com.  Takmarkaður fjöldi er í skólann skráning fer fram á netinu https://www.hlidarfjall.is/is/skidaskolinn/skraning   

Athugið að skráningu í skíða- og brettaskólann lýkur kl. 18 deginum áður en kennslustund fer fram. Þá er skráningarvefnum lokað.

Vinsamlegast greiðið við skráningu til þess að auðvelda afgreiðslu þegar komið er með börnin. 
Foreldrar mega aðeins koma með börnin á svæðið og síðan að ná í þau. 
Við tökum á móti börnunum úti og þar fá þau miða með nafni sínu og símanúmeri foreldris/forráðamanns.  Ef nemendur þurfa að leigja búnað þá munu kennarar aðstoða börnin með hann. Þeir nemendur sem þurfa að leigja búnað eiga að vera mætt hálftíma fyrir kennslustund.  Kennslustundin er síðan búin kl. 11:30 og þegar komið er að sækja börnin þá þurfa foreldrar að bíða í bílum sínum þangað til kennarar koma með þau til þeirra.