Nú þegar almenn opnun á skíðasvæðinu er búin þá ætlum við eins og síðustu ár að gefa leyfi til aksturs á snjósleðum í gegnum svæðið til að komast uppá Hlíðarfjall.
Eins og áður þá er þetta aðeins rauðmerkta leiðin á meðfylgjandi mynd sem má keyra upp og niður. Byrjar við Fjarkann, beint upp í Dalinn og svo ofan við Fjallkonuna út í átt að Mannshrygg. Sneiðingurinn uppá topp er ekki ruddur svo það þarf að stinga sér beint upp brekkuna þar í kverkinni.
Áfram verða skíðaæfingar í brekkunum svo allur annar akstur á svæðinu er stranglega bannaður.
Biðjum allt sleðafólk til að ganga vel um svæðið, sýna tillitsemi og auðvitað fara varlega :)