Sumarið komið á fullt í Hlíðarfjalli – Tvær nýjar snjóbyssur bætast í flotann !

Nú eru sumarverkefnin öll komin á fullt hjá okkur í fjallinu og á nógu að taka. Fjölþætt viðhaldsvinna fer fram í sumar á lyftum og öðrum búnaði, nýjar snjógirðingar verða reistar og eldri lagfærðar, ljós verða áfram uppfærð og svo auðvitað sumaropnunin okkar frá byrjun júlí fram í byrjun september.

Í vikunni var mikið gleðiefni þegar við fengum afhentar tvær nýjar snjóbyssur sem gjöf frá Vinum Hlíðarfjalls. Snjóbyssurnar eru frá MND Snow (Sufag) eins og eldri byssur svæðisins en þessar tvær nýju eru af gerðinni Peak+ og eru aðeins stærri en þær eldri. Peak+ snjóbyssurnar geta kastað snjó lengra, nota minna rafmagn og eru hljóðlátari, en aðallega eiga þær að framleiða betri og meiri snjó. Það verður því gríðarlega spennandi að byrja næsta vetur með þessari frábæru viðbót og þökkum við Vinum Hlíðarfjalls kærlega fyrir.

Önnur gleðitíðindi eru sú að gámarnir sem hýstu skíðaleiguna eru nú byrjaðir að tínast í burtu einn af öðrum og strax erum við farin að sjá hversu mikið þetta opnar svæðið. Mikil hugmyndavinna er í gangi hvernig við munum nýta flötina vestan við Skíðastaði sem best en þar er t.d. verið að skoða að setja upp leiktæki og grill/nestisskýli. Allavega verður nóg pláss til að sitja úti og sleikja sólina þarna næsta vetur :)

Að lokum langar okkur að biðla til hjólafólks að fara ekki í hjólaleiðirnar uppí fjalli strax þar sem þær eru allar enn mjög blautar og vinna er hafin við að laga þær til fyrir sumaropnun. En um leið og við opnum svæðið þá eru auðvitað allir velkomnir að nýta það hvenar sem er sólarhringsins.

Hlökkum til að sjá sem flesta í sumar í fjallinu :)