Sumaropnun 2025

Nú er allur snjór að hverfa úr fjallinu enda tíðin með eindæmum góð, svæðið virðist koma vel undan vetrinum og getur undirbúningsvinna fyrir sumaropnun hafist mjög fljótlega :)

Stefnt er á að sumaropnun verði frá 1. júlí til 6. september. Á tímabilinu verður hægt að nýta lyfturnar okkar til að koma sér upp fjallið hvort sem það er til að njóta hjólagarðsins eða til að ganga um fjallið og njóta útsýnisins.

Breyting verður á opnunartíma í sumar en í samráði við Hjólreiðafélag Akureyrar hefur verið ákveðið að hafa opið á:

  • Þriðjudögum og fimmtudögum frá 16:30-20:30
  • Laugardögum frá 10-16.

Auk þessa verða þrjár helgar sem verður opið frá fimmtudegi til sunnudags, þær eru eftirtaldar:

  • 17 - 20 júlí (Enduro og Downhill keppnishelgi)
  • 31 júlí - 3 ágúst (Verslunarmannahelgin)
  • 28 - 31 ágúst (Downhill keppnishelgi)

Fjarkinn mun ganga á þessum opnunartímum en ekki hefur verið tekin endanleg ákvörðun um hvort að Fjallkonan verður keyrð í sumar, uppfærum stöðuna á því síðar.

Ef vel tekst til og tíðin helst áfram góð gæti verið að það verði opnað fyrr, það verður þá að sjálfsögðu auglýst hér !

Við hlökkum mikið til að sjá ykkur í Hlíðarfjalli í sumar :)