Sumaropnun 2026

Þó það sé ennþá slatta snjór í fjallinu þá er sumarið handan við hornið :)

Í fyrra breyttum við opnunartíma fjallsins í samráði við Hjólreiðafélag Akureyrar sem reyndist virkilega vel og voru nánast allir opnunardagar vel nýttir, það verður því sama fyrirkomulag á opnun í sumar.

Stefnt er á að sumaropnun verði frá 4. júlí til 5. september. Á tímabilinu verður hægt að nýta Fjarkann, neðri stólalyftuna okkar, til að koma sér upp fjallið hvort sem það er til að njóta hjólagarðsins eða til að ganga um fjallið og njóta útsýnisins. Ekki er stefnt á að opna Fjallkonu í sumar vegna viðhaldsvinnu.

Opnunartími:

  • Þriðjudögum og fimmtudögum frá 16:30-20:30
  • Laugardögum frá 10-16.

Auk þessa verða þrjár helgar sem verður opið frá fimmtudegi til sunnudags, þær eru eftirtaldar:

  • 16 - 19 júlí (Enduro og Downhill keppnishelgi)
  • 30 júlí - 2 ágúst (Verslunarmannahelgin)
  • 27 - 30 ágúst (Downhill keppnishelgi)

Opnunardagsetning er birt með fyrirvara, veðrið ræður auðvitað öllu um það hvort við náum að opna 4. júlí, en við vonum að júní verði hlýr og góður !

Hlökkum mikið til að sjá ykkur í Hlíðarfjalli í sumar :)