Sumaropnun hefst á morgun 4. júlí kl. 10 - 16

Sumaropnun hefst á morgun, 4. júlí og stendur til 5. september. Á tímabilinu verður hægt að nýta Fjarkann, neðri stólalyftuna okkar, til að koma sér upp fjallið hvort sem það er til að njóta hjólagarðsins eða til að ganga um fjallið og njóta útsýnisins. Ekki er stefnt á að opna Fjallkonu í sumar vegna viðhaldsvinnu.

Opnunartími:

  • Þriðjudögum og fimmtudögum frá 16:30-20:30
  • Laugardögum frá 10-16.

Auk þessa verða þrjár helgar sem verður opið frá fimmtudegi til sunnudags, þær eru eftirtaldar:

  • 16 - 19 júlí (Enduro og Downhill keppnishelgi)
  • 30 júlí - 2 ágúst (Verslunarmannahelgin)
  • 27 - 30 ágúst (Downhill keppnishelgi)

Hlökkum mikið til að sjá ykkur í Hlíðarfjalli í sumar :)