Sumaropnun í Hlíðarfjalli

Stólalyftan, Fjarkinn, í Hlíðarfjalli verður opin frá 15. júlí til 5. september í sumar.

Í Hlíðarfjalli er góð aðstaða til útivistar bæði fyrir hjóla- og göngufólk. Hægt er að taka hjólið með sér í lyftuna og gangandi geta tekið lyftuna bæði upp og niður og þá fyrir sama verð.  Fjórar hjólabrautir eru í fjallinu í umsjá Hjólreiðafélags Akureyrar, Suðurgil, Andrés, Hjalteyrin, Ævintýraleið og svo eru þrjár aðrar, tvær frá gönguhúsi og ein frá lyftuskúr við Fjarkann sem allar liggja yfir í Glerárdal. Fyrir þá sem eru gangandi er tilvalið að stoppa við Strýtuskála og njóta útsýnis yfir Akureyrabæ og Eyjafjörð. Frá Strýtuskála er svo merkt gönguleið upp á brún Hlíðarfjalls. Þegar þangað er komið er til dæmis hægt að ganga að Harðarvörðu, Blátind, Bungu, Strýtu, Kistu eða á Vindheimajökul og á góðviðrisdögum má oft sjá yfir í Mývatnssveit, Herðubreið eða vestur í Skagafjörð svo eitthvað sé nefnt.

Opnunartímar                                      Verðskrá  Fullorðnir          Börn
Fimmtudagar  frá kl. 17 - 21                   Ein ferð     1.100                 800
Föstudagar       frá kl. 17 - 21 Einn dagur     4.400             1.600
Laugardagar    frá kl. 10 - 18 Helgarpassi   10.800             4.800
Sunnudagar     frá kl. 10 - 16 Sumarkort   26.600           13.600

 Því miður getum við ekki tekið við Ferðaávísun ríkistjórnarinnar.