Takk fyrir frábæra páska 2026

Takk fyrir páskana 2026
Takk fyrir páskana 2026

Takk fyrir frábæra páska 2026

Við í Hlíðarfjalli viljum þakka öllum fyrir komuna um páskana en um 16 þúsund gestir renndu sér hjá okkur í Dymbilvikunni og fram á Annan í páskum 🫶🏻

Þetta voru stærstu páskar hjá okkur í 16 ár sem er magnað sérstaklega þar sem veðrið var að stríða okkur í Dymbilvikunni og það var lokað á Skírdag 🙏🏻

Það má segja að það hafi strax farið að vora í gær þegar hlýnaði og nú er páskapúðrið búið að breytast í blautan vorsnjó. Það á þó að frysta aftur um helgina sem er frábært því þá ætti þessi snjór sem við höfum í fjallinu að standa vel síðustu vikurnar hjá okkur fram að 50. Andrés andar leikunum sem verða þeir stærstu hingað til með tæplega 1100 þátttakendum. Okkur hlakkar mikið til að klára tímabilið með stæl með öllum þessum flottu krökkum 🙌🏻

Það verður opið hjá okkur alla daga fram til 25. apríl, frábærar aðstæður og sólin komin hátt á loft, sjáumst í fjallinu ⛷️🏂