Á laugardaginn síðasta lauk tímabilinu hjá okkur í fjallinu þennan veturinn þegar lokadagur Andrésar Andarleikanna fór fram 😍
Veturinn hjá okkur byrjaði frábærlega þar sem við opnuðum þann 4. des fyrir almenning. Fyrir það höfðu verið æfingar á skíðagöngusvæðinu frá 28. okt og alpagreinar og brettadeild byrjuðu að æfa 17. nóv. Fram að jólum voru frábærar aðstæður en svo kom jólahlákan mikla og urðum við að loka þar til 9. jan. Eftir það gekk vel þrátt fyrir lítinn snjó í janúar og febrúar en svo í mars kom loksins snjósending sem skilaði okkur frábærum páskum, þeim stærstu til þessa í gestafjölda. Svo til að kóróna tímabilið voru Andrésar andarleikarnir alveg æðislegir, 50 ára afmæli leikanna og met þátttaka með yfir 1100 keppendur.
Það var mikil vinna lögð í að halda svæðinu opnu á köflum og það voru 27 dagar sem snjóframleiðsla var keyrð. Á endanum náðum við 113 opnunardögum sem er með því meira á síðustu árum og gestafjöldi náði tæpum 86 þúsund 🙌🏻
Ennþá er talsverður snjór á svæðinu, skíðafélagið verður með æfingar áfram og á skíðagöngusvæði verður troðið áfram á mánudögum og föstudögum meðan aðstæður leyfa.
Hlökkum svo til að sjá sem flesta í fjallinu í sumar og auðvitað að taka á móti ykkur öllum aftur þegar veturinn 2026/2027 gengur í garð ⛷️🏂
Takk fyrir okkur 🤍