Stefnum á opnun 16. desember

Það hefur aðeins snjóað í Hlíðarfjalli undanfarið en samt ekki nógu mikið til þess að hægt sé að fara að vinna brekkurnar. Það er snjókoma í kortunum á næstu dögum og vonandi er góður skíðavetur framundan.

Starfsfólk Hlíðarfjalls er byrjað að undirbúa opnun skíðasvæðisins og stefnt er að því að opna 16. desember en að sjálfsögðu opnum við fyrr ef snjóalög leyfa. 

Forsala á vetrarkortum hefst í kringum 10. nóvember á heimasíðu Hlíðarfjalls og verður þar til skíðasvæðið opnar.

Hlökkum til að sjá ykkur