Opnunardagar í Hlíðarfjalli voru 26 af 29 í febrúar

Aðstæður til útiveru og skíðaiðkunar í Hlíðarfjalli voru með allra besta móti í febrúar. Skíðasvæðið var opið 26 daga af 29 með nægum snjó og veðrið oft og tíðum með allra besta móti.

Aðsóknin er búin að vera frábær enda hafa aðstæður boðið upp á það. Hingað komu í kringum 17.000 manns í vetrarfríum grunnskóla og hér voru færeyskir hópar tvær helgar. Við höfum að auki fengið skólahópa alls staðar að af landinu og að öllu samanlögðu voru gestir í Hlíðarfjalli rúmlega 24.000 manns í febrúar sem er með því betra sem þekkist.

Opnunartími hefur verið lengdur um eina klukkustund bæði fimmtudaga og laugardaga og er nú opið frá kl. 10-17 á laugardögum og 13-19 á fimmtudögum. Sjá nánar um opnunartíma hér.

Nokkur snjóbráð hefur verið í hlýindum síðustu daga en þó er ennþá nægur snjór í Fjallinu og kaldari dagar fram undan. Vonum að páskahretið bregðist okkur ekki og muni færa okkur ríkulega nýja sendingu af góðum snjó.

Framundan eru páskarnir í lok mánaðarins og má búast við að þá liggi straumurinn norður til að fara í Fjallið og njóta tónleika og annarra viðburða á Akureyri.