Útfærsla á opnun Hlíðarfjalls um helgina. MIKILVÆGT -- Uppfært klukkan kl:23:00 - SÖLUKERFI OPIÐ

Vegna fjöldatakmarkanna verðum við að tvískipta dögunum um helgar fyrir gesti Hlíðarfjalls 

Opnunartímar um helgina eru eftirfarandi:

Föstudag 15. janúar frá kl. 12.00 - 19.00
Laugardag 16. janúar frá kl. 10.00 - 17.00
Sunnudag 17. janúar frá kl. 10.00 - 17.00
Á föstudaginn verður hægt að velja um tvenns konar lyftumiða, eins dags lyftumiða og þriggja tíma lyftumiða. Eingöngu verður hægt að kaupa miða á netinu.

Söluferlið hefur verið opnað!


Hægt verður að velja um tvö tímabil um helgina

Föstudag: Heill dagur eða þrír tímar.
Laugardag: 10.00 - 13.00 og 14.00 - 17.00
Sunnudag: 10.00 - 13.00 og 14.00 - 17.00

Þeir aðilar sem nú þegar hafa keypt sér vetrarkort og dagspassa fyrir helgina eiga tryggt pláss í fjallið.

Miðasala verður opin fyrir þá sem vantar Skidata kort og þá sem þurfa einhverja aðstoð.

Við biðjum ykkur að sýna okkur þolinmæði á meðan við keyrum þessar breytingar í gegn og munum upplýsa ykkur um stöðu mála um leið og við höfum nýjar upplýsingar.