Veðurspá um páskana 2026

Hlíðarfjall 30.03.26
Hlíðarfjall 30.03.26

Dymbilvikan byrjar með smá veðurfjöri hjá okkur í fjallinu, þar sem vestan og suðvestan vindur hefur verið að trufla okkur og líklega áfram á morgun...

Hinsvegar lítur spáin fyrir páskana sjálfa vel út og fjallið er orðið þétt pakkað af snjó.

  • Skírdagur -  2. apríl - Skýjað, einhver vindur að suð-austan, hiti í kringum frostmark
  • Föstudagurinn langi - 3. apríl - Spáin góð, í Hlíðarfjalli er spáð sól, logn og hiti um -4 gráður
  • Laugardagur - 4. apríl - Spáin áfram góð, hér verður sól, logn og hiti um -5 gráður
  • Páskadagur - 5. apríl - Áfram góð spá, sól, logn og hiti um -5 gráður
  • Annar í páskum - 6. apríl - flott spá, sól, logn og hiti um -4 gráður

Við minnum á dagskránna um páskana með lifandi tónlist, hér fyrir neðan eru opnunartímarnir hjá okkur:

  • Skírdagur 9-17
  • Föstudagurinn langi 9-17
  • Laugardagur 9-17
  • Páskadagur 9-17
  • Annar í páskum 10-16

Hlökkum til að sjá ykkur í fjallinu :)

(Myndin er frá blíðumorgni gærdagsins áður en vindurinn mætti)